Framboðsgjörningur

Föstudaginn 23ja nóvember sl. hringdi varaformaður VM (Félaga Vélstjóra og Málmtæknimanna) til mín. Erindi hans var að biðja mig að draga framboð mitt til formanns VM til baka. Hann sagði mér að hann og formaður væru búnir finna kandídat til að fara í framboðið, en þeir vildu ekki bjóða hann fram nema að við fjórir sem erum þegar búnir að tilkynna okkar framboð drægjum þau til baka.

Ég varð mjög undrandi þegar ég heyrði þessar hugmyndir. Þeir ætluðu sem sagt að koma að kandídat sem þeim hugnaðist, og væri einn í framboði. Félagsmenn áttu bara að kokgleypa þennan gjörning formanns og varaformanns. Þeirra hugmynd er kannski sú að þeir gætu þá verið með puttanna í félaginu, þó svo að þeir væru sestir í helgan stein. Útskýringin sem ég fékk, var að sameining Félags Járniðnaðarmanna og Vélstjórafélagsins væri nýgerð og það gæti komið upp meiri ágreiningur meðal félagsmanna ef einhver okkar fjórmenninganna væri kosinn. Skilaboð formanns og varaformanns hljóta því að vera þau að félagsmenn séu það vitgrannir að þeir geti ekki unnið sem ein heild.

Þetta er móðgun við okkur frambjóðendur, að ég tali nú ekki um félagsmenn. Þeir vilja að félagsmenn fái nýja stjórn, varastjórn, kjörnefnd og formann án þessa að fá að kjósa. Það er eins og að félagsmönnum komi bara ekki við hverjir verða í forustu fyrir félagið, að mati núverandi formanns og varaformanns.

Ég vil ekki halda þessari ráðagerð leyndri eins og ég var beðinn um. Svona gjörningur á að vera uppi á yfirborðinu. Ef þetta er raunverulega skoðun þeirra þá hefðu þeir ekki átt að vinna að sameiningu þessara félaga. Mín skoðun er sú að formaður og stjórn eigi að vinna fyrir opnum tjöldum og að því markmiði að sameina félögin og ekki draga taum annars hvors eldra félagsins. Því fyrr sem félagsmenn gera sér grein fyrir því að hagsmunum þeirra er best borgið með því að allir vinni saman, því betra. Það var hugsun mín og þess vegna studdi ég sameininguna.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Haukur Nikulásson

Gangi þér vel Valgeir. Það er enginn skömm að því að ganga til kosninga svo lengi sem heiðarlega er að því staðið og menn eru sáttir að kosningum loknum. Lýðræðið virkar best þannig.

Haukur Nikulásson, 4.12.2007 kl. 22:56

2 Smámynd: Valgeir Ómar Jónsson

Svar til formanns og varaformanns VM:

Helgi Laxdal (hann svaraði mér á spjallrás sem VM heldur úti, svo að ég get ekki skrifað hans svar í heild sinni) fer með rangt mál er hann segir, „hvort það komi til greina að hann dragi framboð sitt til baka ef það fyndist frambjóðandi.” Þetta er rangt, það var ekkert EF.

Hann sagði að þeir væru búnir að finna kandídat sem væri tilbúinn að koma í þetta, ef við hinir drögum okkar framboð til baka. Það var ekkert ef í þessu, þeir voru búnir að finna kandídat.

Það er engin ein lausn á því hvernig skapa á einingu meðal félagsmanna. Sameining félaganna gengur út á að koma öllum undir sama merki, þó svo að skoðanir manna séu mismunandi. Við verðum eigi að síður að geta talað um okkar félag og okkar félaga, um það snýst málið. Ég er vélvirki og vélstjóri, þekki báðar þessar greinar ágætlega og lít ekki á aðra æðri hinni.

Lausn þeirra formanns og varaformanns VM fólst í því að koma með
nýjan aðila, sem átti að vera sameiningartákn og vera einn í framboði. Þeir hafa haft nægan tíma til þess að vinna að málinu. Þess í stað koma þeir með þetta eftir að framboðsfrestur er útrunninn og ef frambjóðendurnir fjórir hefðu samþykkt þennan gjörning og dregið framboð sín tilbaka þá hefðu félagsmenn ekkert um það að segja hver verður formaður.

Ég hef líka efasemdir um að uppröðun uppstillingarnefndar til stjórnar og varastjórnar standist samþykktir félagsins. Þegar félögin voru sameinuð var ákveðið að notast við það kosningafyrirkomulag sem tíðkaðist í
Vélstjórafélagi Íslands, aðallega þar sem það félag var landsfélag og framkvæmd kosninga væri póstkosning. Þannig var það að við kusum um þá er í framboði voru og var atkvæðamagn bak við hvern og einn látið ráða hver væri í stjórn og hver í varastjórn. Það segir í lögum VM í 24. gr.: „Við kjör meðstjórnenda, varamanna og í fulltrúaráð eru þeir réttkjörnir sem flest atkvæði hljóta.”

Nú hefur uppstillingarnefnd sett saman tvo lista, annars vegar til stjórnar og hins vegar varastjórnar, sem ekki á að kjósa um. Þessi uppröðun var tilkynnt frambjóðendum bréflega og var hún ekki í samræmi við óskir allra frambjóðendanna og kom sumum þeirra í opna skjöldu. Uppstillingarnefndin valdi þannig hverjir frambjóðenda yrðu í stjórn og hverjir í varastjórn. Ég sé ekki betur en að með þessu sé farið á svig við lög félagsins.

Ég tel rétt að lagður sé fram einn listi til stjórnar og varastjórnar og félagsmenn kjósi um mennina á listanum. Atkvæðamagn ráði hverjir verði í stjórn og hverjir í varastjórn. Þannig tel ég að lýðræðinu sé best þjónað.

Valgeir Ómar Jónsson, 6.12.2007 kl. 20:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Valgeir Ómar Jónsson
Valgeir Ómar Jónsson

Ég býð mig fram til formanns í félagi okkar VM félagi vélstjóra og málmtækni- manna. Ég læt liggja fyrir á síðunni ferilskrá (sjá hér) svo að menn geti séð hvað á mína daga hefur drifið.

Ég lít á okkar félag fyrst og fremst sem þjónustufélag og verði ég kjörin þá lít ég á mig sem ykkar þjónn. Ég vil að félagarnir geti haft samband við mig með öll sín mál, hvað sem ykkur liggur á hjarta. Ég mun hlusta. Þessi bloggsíða á að veita ykkur pláss til að koma með þær tillögur, hugmyndir og gagnrýni sem á ykkur liggja.

Netfang: omar@centrum.is

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband